miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Kakkalakka fjör og smá leyndó máski
Í dag er kalt í dag var Maja jr. óþæg. Ég er ekkert góð í uppeldi. Hún mjálmaði 9 sinnum þegar ég var í sturtu og ég spurði og spurði hvað er að en hún er ekki enn búin að læra íslensku ..hálf léleg finnst mér. Svo er hún svo ógeðslega mikil pempía að ef ég geri ekki sandinn eftir hvert skipti sem þetta litla rassgat kúkar urrar hún á mig.

En af öðru.. Það er allt í hershöndum á kollegíinu.. ég sé fólk hlaupa út úr íbúðunum sínum hálf grenjandi meirasegja karlmenn eru hálf vælandi út af kakkalökkunum.
Þeir voru víst útum allt í einu herbergi hjá einni stelpu.. alveg bakvið allt hjá henni. En ég er svo heppin að hafa maju jr að ég bjargast alveg ef þeir koma til mín.

Annars skellti ég mér í smá hreyfingu í gær í körfubolta. Það var ofkors brjálað fjör.
Er svo á leið til Köben um helgina og ætlar Ning að passa Maju litlu fyrir mig. Sagði henni að það mætti ekki elda hana þó þau eldi og éti ketti í kína. Hún sagðist reyna sleppa því. Já annars verður hún bara étin af mér svo ég geti endurheimt Maju litlu.

En ætla að glósa núna. Skrifið eitthvað skemmtilegt.. þá verð ég svo ofsalega glööð!

0 comments:

Sendu inn athugasemd