þriðjudagur, október 31, 2006

Kakkalakkar á ungdomskollegíinu


Maja jr er í æfingabúðum hjá mér. Síðan ég vissi í morgun að kakkalakkar væru á kollegíinu hef ég verið með Maju jr. í ströngum drápsæfingu þar sem hún étur kakkalakka lifandi (nema ég hef ekki fundið neina kakkalakka svo ég nota stórar rúsínur í staðinn). Æfingarnar eru svoleiðis að ég öskra DREPA og hún hleypur á hlutinn og drepur hann.. Passið ykkur bara að ég gargi ekki drepa næst þegar þú ert í heimsókn.. .. geri það náttúrulega bara við leiðinlega gesti sem eru með leiðindi.
Maja DREPA .. og you're dead.

Hun hefur staðið sig með prýði á æfingunum og held hún eigi eftir að drepa allar flugur, kóngulær og kakkalakka sem komast hingað inn.

Já svona er nú fjör hjá okkur mæðgunum. Hún er samt pínu óþæg á kvöldin og vil leika um 1 leitið og svona og hoppar þá á andlitinu á mömmu sinni. Mér til ómældrar gleði.
Hún er líka ennþá í gourmet liggur við ég fari að kaupa handa henni flottan Beluga kavíar.. hún vill engann kattarmat liggur við.. Fúlsar við öllu. Vil bara borða það sem ég er að borða hverju sinni. Guð .. ég kann svo ekkert á kattaruppeldi. Það verður spennandi að sjá hvernig hún verður þegar hún verður stór!
Læt þetta nægja í bili .. kv. frá mér og jr.

0 comments:

Sendu inn athugasemd